Žökkum kęrlega fyrir frįbęrt Októberfest 2009

Undirbśningur er hafinn og stefnir allt ķ aš Októberfest 2010 verši žaš allra stęrsta frį upphafi...

Nįnari upplżsingar žegar nęr dregur...

Oktober Rokkfest

Fimmtudaginn, 8. október

Tjaldið opnar klukkan 19.00.
Smelltu á nafn hljómsveitar til að fræðast meira um hana.

Oktoberfest

Föstudaginn, 9. október

Bratwurst, Bjór, Þýskir tónar, Búningakeppni, Sauerkraut, Mottukeppni, Bretzel,Íslandsmetið í bjórdrykkju slegið
Tjaldið opnar klukkan 18.00.

Oktober Sveitaball

Laugardaginn, 10. október

Skítamórall

Fyrsta og eflaust eina sveitaballið, sem haldið hefur verið í riiiiisa stóru tjaldi í 101 RVK. Hljómsveitin Skítamórall heldur 20 ára sveitaballs afmæli með tilheyrandi svita og geðveiki!
Tjaldið opnar klukkan 21.00.

Arstidir

Hljómsveitin árstíðir var stofnuð sumarið 2008 og hefur vakið mikla athygli fyrir raddútsetningar og heldur óvenjulega hljóðfæraskipan. þrátt fyrir ungan starfsaldur þá hafa þeir gefið út eina breiðskífu og tónleikaplötu á því rúma ári sem sveitin hefur verið starfandi. Meðlimir sveitarinnar eru þeir Daníel Auðunsson, kassagítar, Gunnar Már Jakobsson, kassagítar, Hallgrímur Jónas Jensson, selló, Jón Elísson, píanó, Karl Aldinsteinn Pestka, fiðla, og Ragnar ólafsson, sem leikur á barítón gítar. Allir meðlimir sveitarinnar sjá svo um sönginn en raddútsetning er eitt af megineinkennum sveitarinnar.

"Platan okkar er farin að vekja athygli í útlöndum og fèkk m.a. mjög góða dóma í sænska tónlistartímaritinu Zero Music. Framundan eru fjölmargir tónleikar auk þess sem að Björgvin Halldórsson hefur boðið okkur að vera gestir hjá sèr á jólatónleikum í Laugardalshöllinni," segir Daníel kassagítarleikari.

Lestu meira um Árstíðir í Oktoberfest blaðinu

Soundspell

Það er róleg en vönduð tónlist sem er í forgrunni hjá hljómsveitinni Soundspell sem mun leika á Októberfest í ár. Sveitin komst í frèttirnar í byrjun síðasta árs þegar hún komust í úrslit í Alþjóðlegri lagasmíðakeppni með laginu Pound. það voru engir aukvisar í dómnefnd keppninnar en kempur eins og Tom Waits og Jerry Lee Lewis, Robert Smith, forsprakki The Cure og Frank Black, höfuðpaur Pixies, áttu þar sæti. Lagið kom af plötunni An Ode To The Umbrella sem kom út á haustdögum 2007.

Sveitina skipa þeir Alexander Briem söngur, áskell Harðarson bassi, Bernharð þórsson trommur, Jón Gunnar ólafsson gítar, og þórður Páll Pálsson gítar en að auki leika þeir allir á fleiri hljóðfæri. "Við tökum því bara rólega um þessar mundir og erum að semja efni. Við erum ekkert að drífa okkur," segir Bernharð trommuleikari sveitarinnar. "Við stefnum að því að fá plötusamning í framtíðinni og það væri gaman að fara út að spila fyrir aðra en íslendinga."

Lestu meira um Soundspell í Oktoberfest blaðinu

Lights on the Highway

Hljómsveitin Lights on the Highway var stofnuð í ágústmánuði fyrir sex árum og var að gefa út sína aðra plötu nú fyrir skemmstu en platan ber heitið Amanita Muscaria. Sveitina skipa þeir Kristófer Jensson, söngvari, Agnar Eldberg, gítar, þórhallur Reynir Stefánsson, trommur, Karl Daði Lúðvíksson, bassi, og Stefán örn Gunnlaugsson, hljómborð. Sveitin er nú að fylgja plötunni úr hlaði og því er mikið að gera þessa dagana.

Þegar blaðamaður spyr söngvarann Kristó um skemmtilegt atvik úr sögu sveitarinnar, stendur ekki á svörum. "Mèr er mjög minnisstætt þegar við vorum að spila á Hoxton Square í London og trommusettið var komið á fleygiferð, var hreinlega á leiðinni út í sal í miðju lagi. þá mætir ráðagóði reddarinn ásgeir, sem var tour manager, leggst fyrir framan bassatrommuna á sviðinu og heldur henni á sínum stað út giggið. þetta er kallað metnaður í starfi."

Lestu meira um Lights on the Highway í Oktoberfest blaðinu

Who Knew

Who Knew verður ein af þeim hljómsveitum sem mun trylla lýðinn á Októberfest en sveitin er að ljúka við sína fyrstu plötu um þessar mundir. það styttist því í að tónþyrstir aðdáendur fái nægju sína en lög þeirra drengja, Sharpen the knife og Made believe, hafa fengið góða dóma. Sveitin var stofnuð í kringum 2005 og tók þátt í Músíktilraunum ári síðar með góðum árangri. Auk þess að ný plata er á leiðinni er nóg af tónleikum framundan og nýtt myndband í burðarliðnum.

Lestu meira um Who Knew í Oktoberfest blaðinu

Krona

Hljómsveitin Króna var stofnuð rètt fyrir bankahrunið og er því eins árs um þessar mundir. Sveitin mun munda hljóðfærin á OktóberRokkfest en hún hefur verið að gera það gott upp á síðkastið með laginu Annar slagur sem er mikið spilað á helstu útvarpsstöðvum bæjarins. Birgir örn Steinarsson, betur þekktur sem Biggi í Maus, syngur, spilar á gítar og hljómborð í sveitinni en honum til fulltingis eru þeir Hjalti Sverrisson á bassa og Jón Valur Guðmundsson á trommur. þeir eru allir sjóaðir í tónlistargeiranum en að sögn Bigga er nafn sveitarinnar rakið til bankahrunsins.

"Sveitin er stofnuð nokkrum dögum áður en bankarnir hrundu. Okkur langaði svo að finna sèríslenskt nafn sem myndi einkenna okkar tíma. Núna snýst allt um krónuna þannig að okkur fannst það vel við hæfi að nefna sveitina eftir henni. Nafnið fær svo líka nýtt nostalgíu gildi ef við köstum krónunni fyrir evruna. þá verður það tákn hins gamla íslands."

Lestu meira um Krónu í Oktoberfest blaðinu

Hoffman

Hljómsveitin Hoffman frá Vestmannaeyjum mun gefa út nýja plötu þann 9. október næstkomandi, degi eftir að þeir leika á Októberfest og því má búast við að sveitin verði í banastuði. Hún var stofnuð árið 2003 en hana skipa ólafur Kristján Guðmundsson, söngvari, Bjarki Sigurjónsson, gítar og söngur, Víkingur Másson, gítar, Magni Freyr Ingason, trommur, og síðast en ekki síst Sæþór ágústsson á bassa. Platan hefur hlotið nafnið Your secrets are safe with us en sveitin hefur legið undir feldi í næstum tvö ár. þeir komu hins vegar sterkir til leiks síðasta sumar þegar þeir tóku upp lagið Slor og skítur í nýrri útgáfu og fèkk það talsverða spilun á öldum ljósvakans. En hvaðan kemur nafn sveitarinnar?

"Við hètum fyrst því hræðilega nafni Dirty Julie en spiluðum aðeins á einum tónleikum undir því nafni. Hoffman varð fyrir valinu því Albert Hoffman var jú maðurinn sem uppgötvaði LSD," segir ólafur Kristján söngvari.

Lestu meira um Hoffman í Oktoberfest blaðinu

Mammut

Hljómsveitin Mammút hefur notið vaxandi hylli á undanförnum árum og sló sveitin rækilega í gegn hèrlendis með annarri plötu sinni, Karkari, sem kom út á síðasta ári. Sveitin sigraði í Músíktilraunum árið 2004 en hefur þroskast mikið allar götur síðan og er nú með vinsælli rokksveitum landsins. Sveitin var upphaflega stofnuð sem stúlknatríó árið 2003 en það breyttist fljótlega og í dag skipa hljómsveitina þau Andri Bjartur Jakobsson, trommur, Alexandra Baldursdóttir, gítar, Katrína Mogensen, söngur, Vilborg ása Dýradóttir, bassi og Arnar Pètursson, gítar.

Lestu meira um Mammút í Oktoberfest blaðinu

Dikta

Hljómsveitin Dikta hefur verið með vinsælustu rokksveitum landsins á undanförnum árum og skal engan undra. Fyrsta plata sveitarinnar, Hunting for Happiness, kom út árið 2005 og fèkk frábæra dóma hjá íslenskum tónlistarspekúlöntum. Sveitina skipa þeir Haukur Heiðar Hauksson, söngur, gítar og hljómborð, Jón Bjarni Pètursson, gítar, Jón Þór Sigurðsson, trommur, og Skúli Gestsson, bassi og hljóðgervlar. Ný plata frá strákunum er núna í undirbúningi og má búast við að hún komi út rètt fyrir jólin, en nú þegar hafa tvær smáskífur frá sveitinni litið dagsins ljós og fengið töluverða spilun á öldum ljósvakans.

Lestu meira um Diktu í Oktoberfest blaðinu

Ensimi

Eitt stærsta bandið á Októberfest þetta árið er rokksveitin Ensími en sú sveit státar af einni bestu rokkplötu íslandssögunnar að mati gagnrýnenda, Kafbátamúsík, sem kom út árið 1999. Sveitin fagnar því tíu ára afmæli plötunnar á þessu ári og kom saman fyrir skömmu eftir nokkurt hlè. þessi frábæra rokksveit varð til í bílskúr í Garðabæ á árunum 1996-1997 og hana skipa Hrafn Thoroddsen, söngur og gítar, Franz Gunnarsson, gítar og söngur, Guðni Finnsson, bassi, Arnar Gíslason, trommur, og þorbjörn Sigurðsson, sem leikur á hljóðgervla ásamt því að syngja.

"Andinn í bandinu er frábær. Við erum byrjaðir að spila aftur sem er mjög jákvætt. Viðbrögðin við endurkomu Ensími eru sláandi og við erum djúpt snortnir. Nú teljum við niður í Október Rokkfest," segir Franz gítarleikari. "Ensími mun að sjálfsögðu leika slagara af Kafbátamúsík á hátíðinni. Við hvetjum ykkur lesendur til að senda póst á skipuleggjendur með óskalög [amevents@amevents.is]. þau lög sem hljóta flest atkvæði rata inn á lagalistann," lofar Franz.

Lestu meira um Ensíma í Oktoberfest blaðinu

Skitamorall

Hljómsveitin Skítamórall fagnar 20 ára starfsafmæli á þessu ári og ætlar heldur betur að slá um sig af því tilefni. þeir munu fagna með því að leika á stærsta sveitaballi ársins á laugardagskvöldinu á Októberfest þar sem engu verður til sparað. Meðlimir Skítamórals eru þekktir fyrir leiftrandi sviðsframkomu og má búast við að tjaldið hreinlega rifni sökum stemmningar á lokadegi hátíðarinnar. þrátt fyrir að hafa verið starfandi saman í hljómsveit frá 13 ára aldri, og að fimm plötum liðnum, er engan bilbug að finna á sveitinni.

"Fyrstu tíu árin spiluðum við ekkert rosalega mikið og byrjuðum ekki í ballbransanum fyrr en í kringum 1996. það hafa komið tímabil þar sem við spilum gríðarlega þètt en eftir 2000 höfum við verið að spila með hlèum. það er hins vegar mikill hugur í Skítamóral, mikil gleði og mikið gaman," segir Addi Fannar gítarleikari sveitarinnar.

Lestu meira um Skítamóral í Oktoberfest blaðinu

Midasala

Mišasala fer fram ķ helstu byggingum hįskólans daganna 6. til 9. okt. frį 11:30 - 13:30

Festival armband inn į alla hįtķšina kostar ašeins 2.500 kr.

- allir meš armband fį ódżrari bjór yfir alla hįtķšina

10 bjóra afslįttarkortiš veršur einungis hęgt aš kaupa ķ forsölu, mjög takmarkaš upplag er ķ boši

Mišaverš viš hurš

Oktober Rokkfest 1.500 kr.
Oktoberfest 2.000 kr.
Sveitaball 2.000 kr.

Einnig er hęgt aš kaupa miša į Oktober Rokkfest og Sveitaballiš į miši.is

Um Oktoberfest

Ķmyndašu žér staš žar sem allt er fljótandi ķ gullnum svalandi draumamiši og hiš eina sameiginlega markmiš allra į stašnum er aš svala žorsta sķnum ķ ótakmörkušum bjór, skįla og skemmta sér. Segjum sem svo aš žaš vęri stórt tjald sem rśmaši allan žann fjölda sem į žennan draum sameiginlegan meš žér. En dokum ašeins viš, žetta er ekki draumur, žessi stašur er til og heitir Októberfest!

Októberfest er upprunalega frį Žżskalandi og er haldin įrlega ķ München. Hįtķšin var fyrst haldin 17. október 1810 ķ tilefni af brśškaupi Ludwig krónprins og Theresu prinsessu og er oršin fręgasta hįtķš München og ein sś stęrsta ķ heiminum. Hįtķšin heldur žvķ upp į 199 įra afmęli sitt ķ įr og hefur veriš haldin nįnast hvert einasta įr, žó hśn hafi reyndar falliš nišur į strķšsįrunum. Ekki slęmt žaš! Žaš skrķtna viš Októberfest ķ München er žaš, aš hśn byrjar ķ september. Įstęšan fyrir žvķ er einfaldlega sś aš žaš er mun betra vešur žį.

Októberfest į Ķslandi var fyrst haldin af nemum ķ Žżskudeild ķ Hįskóla Ķslands. Žį var hįtķšin smį ķ snišum en engu aš sķšur sama markmiš, žaš aš drekka bjór og skemmta sér saman. Fyrst um sinn voru žaš žżskunemar og vinir žeirra sem komu saman og teigušu mjöšinn gullna. Hįtķšin óx svo įr frį įri og loks var hśn vaxin upp śr žvķ aš vera hundraš manna hįtķš og gestir oršnir į annaš žśsund. Ķ dag er hįtķšin oršin einn stęrsti og višamesti višburšur ķ félagslķfi hįskólanema. Margar af heitustu rokkhljómsveitum koma og spila fyrir žyrsta hįskólanema sem hrista mjašmirnar og svala žorstanum um leiš. Októberfest er skemmtun sem engan bjór-įhugamanninn svķkur.